Jóhann Friðgeir og Ólafur Kjartan

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Jóhann Friðgeir og Ólafur Kjartan

Kaupa Í körfu

Gunnar og Njáll innsigla vináttuna. Ólafur Kjartan Sigurðarson og Jóhann Friðgeir Valdimarsson. LEIÐSÖGUMENN í "Óvissuferð í óperuna" á hádeginu á þriðjudag verða tenor og baritón og píanóleikari. Það eru þeir Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Ólafur Kjartan Sigurðarson og Jónas Ingimundarson sem leiða tónleikagesti á hádegistónleikum Íslensku óperunnar um undraheima sönglistarinnar. Jóhann Friðgeir þvertekur þó fyrir að það verði nokkur óvissa á ferðum, tónleikarnir gætu allt eins heitið síðasta lag fyrir fréttir. Og þegar því hefur verið ljóstrað upp vakna nú sjálfsagt grunsemdir um það hjá einhverjum að vörðurnar í ferðinni séu íslensk sönglög. Og það reynist rétt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar