Glaumbær

RAX/ Ragnar Axelsson

Glaumbær

Kaupa Í körfu

Helgi Sigurðsson og Jón Hjörtur Stefánsson voru að laga Bláustofu í Glaumbæ í Skagafirði þegar ljósmyndari bar að garði. Þeir félagar kunna skil á fornum vinnubrögðum og verkháttum við torfhleðslur og torfskurð. Þeir sóttu torfið í Glaumbæjareyjar og sögðu nóg af góðu efni þar. Torfið er skorið eftir kúnstarinnar reglum eftir því hvort það er notað í þakið eða klömbrur í gafl hússins. Efnið í þakið er síðan þurrkað áður en það er lagt. Helgi sagði nóg af verkefnum hér á landi fyrir vana torfhleðslumenn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar