Sinfónían - Undirritun samnings um tónlistarhús

Þorkell Þorkelsson

Sinfónían - Undirritun samnings um tónlistarhús

Kaupa Í körfu

Ashkenazy heiðursstjórnandi VIÐ undirritun samkomulags ríkis og borgar um byggingu tónlistarhúss, greindi Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, jafnframt frá því, að Vladimir Ashkenazy hefði fallist á að gerast heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Um er að ræða fyrstu heiðursstjórnandanafnbót sem hljómsveitin veitir og að sögn Þrastar Ólafssonar, framkvæmdastjóra hljómsveitarinnar, er það henni mikill heiður að Ashkenazy hafi samþykkt að taka þessu boði. MYNDATEXTI: "Fólk spyr: Hvað er þessi kall með prikið eiginlega að gera þarna?" Vladimir Ashkenazy þakkar þann heiður sem honum er sýndur með nafnbót heiðurshljómsveitarstjóra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar