Poulenc-hópurinn

Sverrir Vilhelmsson

Poulenc-hópurinn

Kaupa Í körfu

Poulenc-hópurinn: Ármann, Eydís, Þórunn, Kristín Mjöll, Greta, Guðmundur, Hallfríður, Hávarður, Kjartan og Anna. Fjarverandi þegar ljósmyndari fangaði hópinn á æfingu var Valgerður. LOKATÓNLEIKAR 15:15 tónleikaraðarinnar á Nýja sviði Borgarleikhússins verða í dag kl. 15:15. Þá standa ,,Ferðalög" og Poulenc-hópurinn fyrir tónleikum þar sem hlustendur fá tækifæri til að kynnast kammertónlist frá Tékklandi og Rússlandi í verkum eftir Stravinsky, Janácek, Rachmaninov og Prokofiev. Flytjendur eru Þórunn Guðmundsdóttir sópran, Valgerður Andrésdóttir píanóleikari, Greta Guðnadóttir fiðluleikari, Guðmundur Kristmundsson víóluleikari, Hávarður Tryggvason kontrabassaleikari, Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari, Eydís Franzdóttir óbóleikari, Ármann Helgason klarínettuleikari, Kjartan Óskarsson bassaklarínettuleikari, Anna Sigurbjörnsdóttir hornleikari og Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagottleikari

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar