Grótta/KR - Stjarnan 22:26

Golli/ Kjartan Þorbjörnsson

Grótta/KR - Stjarnan 22:26

Kaupa Í körfu

Umskipti á Seltjarnarnesi ALGJÖR umskipti á varnarleik Stjörnunnar í leik gegn Gróttu/KR á sunnudag færði Garðbæingum réttinn til þess að leika um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna, þar sem liðið mætir Haukum úr Hafnarfirði. Stjarnan sigraði Gróttu/KR með fjögurra marka mun 22:26 eftir að hafa verið undir í leikhléi 17:13. MYNDATEXTI: Ragnheiður Stephensen, Stjörnunni, sækir að Evu Björk Hlöðversdóttur og Selmu Grétarsdóttur, varnarmönnum Gróttu/KR, í leik liðanna á sunnudaginn. Ragnheiður og samherjar höfðu betur og eru komnir í úrslitaeinvígið við Hauka. Það hefst á laugardaginn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar