Reykjavíkurakademían - Maraþonupplestur

Sverrir Vilhelmsson

Reykjavíkurakademían - Maraþonupplestur

Kaupa Í körfu

Aldarafmæli Laxness haldið hátíðlegt Efnt var til hátíðarhalda víða um land í gær í tilefni af því að öld var liðin frá fæðingu Halldórs Laxness, hinn 23. apríl árið 1902. Afmælisdagur nóbelsskáldsins er jafnframt sá sami og valist hefur sem Alþjóðadagur bókarinnar. Ljósmyndarar Morgunblaðsins voru á ferðinni í gær og mynduðu hina ýmsu viðburði sem haldnir voru í tilefni dagsins. MYNDATEXTI: Efnt var til maraþonupplesturs í JL-húsinu á vegum Hagþenkis og ReykjavíkurAkademíunnar. Lesið var stanslaust frá klukkan tíu árdegis fram á kvöld. Fjölmargir rithöfundar tóku þátt en almenningi bauðst jafnframt að lesa sinn uppáhaldskafla úr verkum Laxness og gæða sér á kaffi og hnallþórusneið. Maraþonupplestur úr verkum Halldórs Laxness

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar