Háteigsskóli

Sverrir Vilhelmsson

Háteigsskóli

Kaupa Í körfu

Tæplega 4.000 unglingar þreyttu samræmt próf í íslensku í gærmorgun en það var það fyrsta í röðinni af þeim fimm samræmdu prófum sem þreytt verða að þessu sinni. Prófin hafa reynst mörgum strembin í gegnum tíðina og þá borgar sig að vera sem best undirbúinn. Í Háteigsskóla sáu nokkrir krakkar sér þann kost vænstan að leggjast út af í slökun síðustu mínúturnar fyrir prófið í gær enda vissara að vera fullur orku þegar tekist er á við textann á prófblaðinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar