Hátíðartónleikar í Hlégarði - Diddú - Halldór Laxness

Hátíðartónleikar í Hlégarði - Diddú - Halldór Laxness

Kaupa Í körfu

Aldarafmæli Laxness haldið hátíðlegt Efnt var til hátíðarhalda víða um land í gær í tilefni af því að öld var liðin frá fæðingu Halldórs Laxness, hinn 23. apríl árið 1902. Afmælisdagur nóbelsskáldsins er jafnframt sá sami og valist hefur sem Alþjóðadagur bókarinnar. Ljósmyndarar Morgunblaðsins voru á ferðinni í gær og mynduðu hina ýmsu viðburði sem haldnir voru í tilefni dagsins. MYNDATEXTI: Hátíðartónleikar voru haldnir í Hlégarði í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Meðal flytjenda var Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, sveitungi skáldsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar