Tangó

Golli/ Kjartan Þorbjörnsson

Tangó

Kaupa Í körfu

enginn myndatexti: frétt: ANNAN hvern fimmtudag breytist Kaffi List við Laugaveg í líflegan dansstað þar sem unnendur argentínsks tangós fá útrás fyrir dansgleði og sköpunarþörf. Fagrir tónar tangótónlistar taka á móti gestum sem skyndilega hlýnar er þeir stíga inn úr kuldanum í þetta heita andrúmsloft sem ættað er frá Suður-Ameríku. Í dag er argentínskur tangó iðkaður í öllum helstu stórborgum heims af fólki úr öllum stéttum samfélagsins. Hann er ólíkur öðrum samkvæmisdönsum að því leyti að hann er spuni. Þeir sem dansa tangó læra ákveðin spor sem þeir geta síðan raðað saman að vild. Á þeim þremur mínútum sem eitt tangólag stendur yfir getur því allt gerst, karlinn gefur skilaboðin og konan svarar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar