Vestfirskir alþingismenn í Naustinu - Galdrar

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Vestfirskir alþingismenn í Naustinu - Galdrar

Kaupa Í körfu

Vestfirðingar leggja undir sig Perluna DREIFBÝLISMÓRI var kveðinn niður með kröftugri galdraþulu og mögnuðum særingum um nónbil í gær. Var þar að verki galdramaður af Ströndum, Sigurður Atlason, sem kann ævaforn ráð til að ráða niðurlögum móra og annarra kvikinda./Perlan Vestfirðir Særingarnar í gær voru liður í sýningunni Perlan Vestfirðir sem verður opnuð í Perlunni föstudaginn 3. maí og er síðan opin frá klukkan 11 til 17 laugardag og sunnudag. MYNDATEXTI: Galdrastafir, særingar, gól og þulur voru notuð til að kveða niður dreifbýlismóra. Þingmennirnir Guðjón Guðmundsson, Einar K. Guðfinnsson, Einar Oddur Kristjánsson og Magnús Stefánsson fylgjast grannt með.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar