Bakvarðarsveit Haraldar Arnar í Útilífi

Golli/ Kjartan Þorbjörnsson

Bakvarðarsveit Haraldar Arnar í Útilífi

Kaupa Í körfu

Haraldur Örn Ólafsson setti heimsmet á tindi Everest í ærmorgun "Ég er á þaki heimsins" HARALDUR Örn Ólafsson setti heimsmet í gær, er hann komst á tind Everest-fjalls og hefur þar með gengið á hæsta tind hverrar heimsálfu og á suður- og norðurpólinn á skemmstum tíma./Mikil stemmning var aðfaranótt fimmtudags í Útilífi í Smáralind þar sem var opið hús á meðan Haraldur kleif tindinn og brutust út mikil fagnaðarlæti þegar hann hringdi úr gervihnattasíma af tindinum og talaði við Davíð Oddsson forsætisráðherra sem fór snemma á fætur í gærmorgun til að vera viðstaddur atburðinn. "Þetta er Haraldur Örn Ólafsson. Ég er á þaki heimsins, Mount Everest," sagði Haraldur og göngumæðin leyndi sér ekki. MYNDATEXTI: Spennan í Útilífi náði hámarki þegar Haraldur hringdi af tindinum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar