Freydís Kristófersdóttir

Jim Smart

Freydís Kristófersdóttir

Kaupa Í körfu

Freydís Kristófersdóttir hefur komið víða við þrátt fyrir ungan aldur. Hún lék annað aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Stikkfrí, sem fjallaði um tvær ungar stúlkur sem lenda í ýmsum ævintýrum þegar þær eru skyndilega komnar með lítið barn upp á armana. Einnig fór hún með hlutverk í kvikmyndinni Ikingut. Á síðasta ári söðlaði Freydís svo rækilega um og kom, sá og sigraði á árlegri keppni í rímnaflæði í félagsmiðstöðinni Miðbergi, og varð þar með fyrsti kvenkyns sigurvegari þessarar keppni. Nú á dögunum kom svo út diskur sem ber heitið Rímnaflæði 2001 og hefur hann meðal annars að geyma sigurlag Freydísar, Drusla

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar