Slade á Broadway

Slade á Broadway

Kaupa Í körfu

Dave Hill var að sjálfsögðu með hattinn góða á sínum stað GÖMLU glyskempurnar í Slade léku á hljómleikum á Broadway síðastliðinn fimmtudag. Er skemmst frá því að segja að sveitin vakti rífandi lukku og var klöppuð upp þrisvar sinnum en Dave "Superyob" Hill og félagar renndu sér í gegnum ódauðlega slagara eins og "Cum on feel the Noize", "Run Runaway" og "Mama Weer All Crazee Now". Hingað kom sveitin síðast fyrir aldarfjórðungi og svo virðist sem þeir hafi náð að gera viðlíka lukku nú og þá. Áfram Slade!

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar