ÍA- Þór 0-1

ÍA- Þór 0-1

Kaupa Í körfu

Jónas Baldursson, til vinstri, og Hlynur Birgisson voru traustir í vörn Þórsara í fyrstu umferð Íslandsmótsins. Hér eru þeir á verði fyrir aftan markvörð Þórs, Atla Má Rúnarsson, en Þórsarar héldu hreinu í viðureign sinni á Akranesi og fögnuðu sigri, 1:0. JÓNAS Baldursson lék í öftustu varnarlínu Þórs ásamt Hlyn Birgissyni og stigu þeir félagar varla feilspor á Akranesi á mánudaginn, þar sem nýliðar Þórs lögðu meistara ÍA, 1:0. Jónas var í einkennilegri stöðu þar sem hann var að leika í fyrsta sinn í efstu deild - tæplega 37 ára gamall. "Já, ég er að verða 37 ára og það er kominn tími til að leika gegn og með þeim bestu," sagði Jónas en hann hefur leikið að undanförnu með Dalvík.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar