Jeríkó

Jim Smart

Jeríkó

Kaupa Í körfu

Ábreiður fyrir börn með áletrunum texti: JERÍKÓ er yfirheiti á trúarlegum listiðnaði sem Martha Árnadóttir stjórnmálafræðingur hefur hannað og sett á markað í samvinnu við mágkonu sína, Elínu Óladóttur, sem kallar sig "Elínu Saumó". "Hugmyndin að baki Jeríkó er að bjóða fólki upp á fallegar vörur sem segja meira en mörg orð. "Hér finnur þú muni sem henta við öll möguleg tækifæri, muni sem prýða heimilið og færa heimilisfólkinu yl í kroppinn og sálina," segir Martha. Þetta eru flísteppi með ísaumuðum trúarlegum áletrunum, fyrir börn og fullorðna, og púða og handklæði svo eitthvað sé nefnt. Þarna er líka að finna teppi með "æðruleysisbæninni" svokölluðu, sem meðal annars sjúkrahús og AA-samtökin hafa stuðst við í sínu uppbyggingarstarfi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar