Maður brenndist alvarlega í bruna við Laugaveg

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Maður brenndist alvarlega í bruna við Laugaveg

Kaupa Í körfu

Maður brenndist alvarlega í eldsvoða í risíbúð við Laugaveg í býtið í gærmorgun og er talinn í lífshættu. Að sögn slökkviliðs er ekki vitað um eldsupptök en mestur var eldurinn í eldhúsi í kringum eldavél. Slökkviliði barst tilkynning um eld í húsi á mótum Laugavegar og Klapparstígs laust fyrir klukkan sex í gærmorgun en um er að ræða timburhús á þremur hæðum. Myndatexti: Greiðlega gekk að slökkva eldinn í húsinu við Laugaveg en Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi lið frá þremur stöðvum á eldstað. ( Eldur í risíbúð að Laugavegi 20b á sjötta tímanum í morgun. Einn maður fluttur á brunadeild Landspítala háskólasjúkrahúss á Hringbraut. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi lið frá þremur stöðvum á eldstað. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins en töluverð eftirvinna var við það að rífa og slökkva í glæðum.)

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar