Heimir Björgúlfsson

Sverrir Vilhelmsson

Heimir Björgúlfsson

Kaupa Í körfu

Myndlistin í forgang Heimir Björgvinsson er nú staddur hér á landi að opna myndlistarsýningu, en hann er einnig í þann mund að senda frá sér skífu með nýrri hljómsveit. Ein helsta hljómsveit Íslands síðustu ár er Stilluppsteypa, sem hefur þó aðallega starfað erlendis, enda hafa liðsmenn hennar stundað nám ytra. Það vakti eðlilega talsverða athygli fyrir skemmstu þegar Heimir Björgúlfsson, einn stofnenda Stilluppsteypu, sagði skilið við sveitina til að snúa sér að öðru, en hann er nú í mastersnámi í myndlist í Hollandi. Þrátt fyrir námið er Heimir þó ekkert að slá af í afköstum því hann opnaði sýningu á listaverkum eftir sig í Galleríi Hlemmi í gær, 1. júní, væntanlegur er diskur með nýrri hljómsveit hans, sem er þó ekki hljómsveit, skammt er síðan hann sendi frá sér tólftommu, væntanleg er samstarfsplata og hann er á kafi í upptökum á nýrri sólóskífu. enginn myndatexti

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar