Jiang Zemin á Þingvöllum

Jim Smart

Jiang Zemin á Þingvöllum

Kaupa Í körfu

Jiang Zemin Kínaforseti og fylgdarlið hans ferðuðust um Suðurland í gær, en forsetinn heldur af landi brott í dag. Ferðin í gær hófst um klukkan hálf tíu við Hótel Loftleiðir, en þar hitti Jiang Zemin starfsmenn kínverska sendiráðsins og aðra Kínverja búsetta á Íslandi. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var með í ferðinni, en henni var fyrst heitið á Nesjavelli í húsnæði Orkuveitunnar. Myndatexti: Jiang Zemin og Ólafur Ragnar Grímsson virtu fyrir sér Þingvelli, sem skörtuðu sínu fegursta.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar