Goðafoss

Kristján Kristjánsson.

Goðafoss

Kaupa Í körfu

Mikill stærðarmunur GOÐAFOSS, vöruflutningaskip Eimskips, kom til Akureyrar um hádegisbil í gær til að losa og lesta vörur hjá félaginu. Goðafoss og systurskipið Dettifoss eru stærstu skip íslenska kaupskipaflotans í siglingum til og frá landinu og er Goðafoss jafnframt stærsta vöruflutningaskip sem komið hefur til Akureyrar. Skipið er 166 metra langt og tæplega 15.000 brúttólestir að stærð og er lestunargetan um 1.500 gámaeiningar. Á myndinni sést Goðafoss við Oddeyrarbryggju en úti á Pollinum siglir smábátur og eins og sjá má er stærðarmunurinn mikill.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar