Straumönd merkt

Straumönd merkt

Kaupa Í körfu

Illa ertu leikinn bróðir" er mikilvæg setning úr fornri þjóðsögu um það hvernig straumöndin hreppti ótrúlegt fjaðurskraut sitt. Setningin gat einnig vel átt við hlutskipti þeirra straumanda sem lentu í neti Björns Hjaltasonar við Bugðu í Kjós á dögunum. Björn Hjaltason er ekki fuglafræðingur. Hann er bókbindari í Prentsmiðjunni Odda og "vinnur þar sínar vaktir", eins og hann komst að orði. En fuglar og allt þeirra líf og tilstand er hans helsta áhugamál og það svo mjög, að hann hefur tekið upp á umfangsmiklum vísindarannsóknum á sínum eftirlætisfugli, straumöndinni. Myndatexti: Straumöndin er sallaróleg meðan Björn festir merkið á fót hennar, Baldur Þór og Jóhanna Helga Þorkelsdóttir fylgjast með.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar