Pollamót KA á Akureyri

Pollamót KA á Akureyri

Kaupa Í körfu

"Ég gerði ein afdrifarík mistök - sem kostuðu sjö mörk" ELDRI knattspyrnumenn en alla jafna sjást opinberlega komu saman á íþróttasvæði Þórs um helgina, fjórtánda árið í röð, á svokölluðu Pollamóti Þórsara. Keppt var í tveimur deildum karla að venju; þeir sem verða þrítugir á árinu reyndu með sér í Polladeild en fertugir og eldri í Lávarðadeild. Þá kepptu sjö lið í Ljónynjudeild, en þar voru á ferðinni konur 25 ára og eldri. Fylkismenn urðu hlutskarpastir að þessu sinni í Polladeildinni, sigruðu lið sem kallaði sig Stöngin inn 1:0 í úrslitaleiknum með þrumuskoti sem fór í stöngina og inn og þótti það vel við hæfi. Þeir Stangarmenn jafnvel taldir hafa sætt sig við tapið þar sem markið var gert með þessum hætti. MYNDATEXTI. Liðin sem kepptu til úrslita í Polladeild Pollamótsins, Stöngin inn í efri röð og Fylkir í neðri röð. Fylkir vann leikinn 1:0 og var sigurmarkið þrumuskot í stöngina og inn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar