Reykjavíkurlistinn Ingólfstorgi

Þorkell Þorkelsson

Reykjavíkurlistinn Ingólfstorgi

Kaupa Í körfu

FRAMBJÓÐENDUR í Reykjavík höfðu í nógu að snúast í gær á lokaspretti kosningabaráttunnar. Fulltrúar framboðslistanna drógu hvergi af sér á þessum síðasta degi fyrir kosningarnar og ræddu við kjósendur víðs vegar um borgina, heimsóttu vinnustaði, efndu til baráttufunda og slógu á létta strengi í blíðviðrinu, sem lék við borgarbúa. Myndatexti: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sést hér í hópi stuðningsmanna Reykjavíkurlistans sem komu saman á Ingólfstorgi síðdegis í gær og hlýddu á fjölbreytta skemmtidagskrá í blíðviðrinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar