Krakkar í Þjóðleikhúsinu

Arnaldur Halldórsson

Krakkar í Þjóðleikhúsinu

Kaupa Í körfu

Þjóðleikhúsið opnað börnum ÞÓ AÐ tvíburarnir síkátu Jón Oddur og Jón Bjarni hafi lifað tuttugu ár eru þeir enn sömu prakkararnir og áður fyrr. Krakkar í Þjóðleikhúsinu. ............... Þegar leikári Þjóðleikhússins lauk var afráðið að halda þar opið hús fyrir börn á leikjanámskeiðum og á leikskólum í Reykjavík. Boðið var upp á klukkustundar langa dagskrá á stóra sviðinu þar sem sýnt var brot úr leikritinu og ýmsir leikhúsgaldrar framkvæmdir við mikinn fögnuð viðstaddra. Guðrún Helgadóttir las svo kafla úr einni bóka sinna um þá Jón Odd og Jón Bjarna en kynnir dagsins var Linda Ásgeirsdóttir, sem fór með hlutverk Önnu Jónu, systur tvíburanna, í leikritinu. MYNDATEXTI. Krakkarnir fylgdust spenntir með dagskránni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar