Texolín Eðalolía

Arnaldur Halldórsson

Texolín Eðalolía

Kaupa Í körfu

Viðarvörn HARPA Sjöfn hefur sett á markað Texolín eðalolíu, sem er ný tegund af viðarvörn. Hún hefur þann eiginleika að mynda ekki lakkfilmu á yfirborði viðarins og á því að henta vel til notkunar utanhúss á ómálaðan við eins og veggi, þakkanta, glugga, sólpalla og viðarhúsgögn, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Hörpu Sjöfn. Viðarvörnin inniheldur vætandi olíu, vatnsfælu og ljóssíu sem ver viðinn gegn útfjólubláu ljósi sólarinnar. Viðarvörnin inniheldur ekki skaðleg fúavarnarefni og er framleidd í glæru og þremur litbrigðum, furu, rauðviði og tekki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar