Líkamsárás á göngustíg við Rekagranda

Júlíus Sigurjónsson, julius@mbl.is

Líkamsárás á göngustíg við Rekagranda

Kaupa Í körfu

Þrír menn voru handteknir eftir afar fólskulega líkamsárás í Vesturbæ Reykjavíkur um hádegisbil í gær. Maðurinn sem ráðist var á slasaðist alvarlega á höfði og gekkst hann undir aðgerð á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í gær. Árásarmennirnir voru taldir undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og mun hafa verið um að ræða föður um fimmtugt með sonum sínum tveimur um tvítugt. Hafa þeir komið við sögu lögreglunnar áður. Myndatexti: Hinn slasaði var meðvitundarlaus þegar lögregla og sjúkralið kom á vettvang árásarinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar