Villti folinn

Villti folinn

Kaupa Í körfu

Ótrúlega glæsilegir vinningar eru í boði fyrir bestu hestasögurnar. Hér má sjá stelpubol og armband, derhúfu og hest. Allt merkt Villta folanum. Hestar hafa alltaf verið stór hluti af lífi Íslendinga. Fyrst auðvitað sem þarfasti þjónninn, en nú á dögum hafa ótrúlega margir áhuga á hestamennsku, bæði til að keppa og svo bara til að ríða úti í náttúrunni í rólegheitunum. Það er því líklegt að margir krakkar hafi góða hestasögu að senda í ritsamkeppni Barnablaðs Moggans, annaðhvort alvörusögu eða ímyndaða. Og þeir sem aldrei hafa komið nálægt hesti spinna bara upp eina sögu á augabragði. Ekki satt?

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar