Kotstrandarkirkja

Sverrir Vilhelmsson

Kotstrandarkirkja

Kaupa Í körfu

Kotstrandarkirkja í Árnesprófastsdæmi Kotstrandarkirkja er í Hveragerðisprestakalli í Árnesprófastsdæmi. Hún var byggð 1909 og vígð 14. nóvember sama ár. Hún er úr járnklæddu timbri, um 85 m² og tekur 200 manns í sæti. Samúel Jónsson frá Hunkubökkum á Síðu var yfirsmiður. Gamla altaristaflan er úr Reykjakirkju og Örlygur Sigurðsson málaði málverkið af séra Ólafi Magnússyni. Kirkjugarðurinn á Kotströnd þjónar einnig Hveragerði. Hvergerðingar sóttu Kotstrandarkirkju þar til þeirra kirkja var tilbúin. Garðurinn, sem markar kirkjugarðinn á tvo vegu er prýðilega velhlaðinn og skoðunarverður. Árið 1909 var ákveðið að leggja niður kirkjurnar að Arnarbæli og Reykjum og leggja sóknirnar til Kotstrandar. Séra Ólafur Magnússon sat í Arnarbæli 1903-1940 og var síðasti prestur þar. Hann þjónaði Kotströnd, Hjalla og Strönd í Selvogi en að honum látnum hafa prestar setið í Hveragerði og Kotstrandarkirkja varð að útkirkju þaðan. Í katólskum sið voru kirkjurnar á Kotströnd helgaðar heilögum Nikulási og útkirkjur voru að Hjalla og á Reykjum. ( http://www.nat.is )

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar