Golfmót við Hellu

Arnaldur Halldórsson

Golfmót við Hellu

Kaupa Í körfu

Glæsilegt golf og frábært mót SIGURPÁLL Geir Sveinsson úr Golfklúbbi Akureyrar og Ólöf María Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Keili, urðu sigurvegarar á 60. Íslandsmótinu í golfi sem fram fór á Strandarvelli við Hellu og lauk á sunnudaginn. Mótið var sérlega glæsilegt enda veður hið besta allan tímann, sem er óvenjulegt þegar golfmót eru annars vegar, og spilamennska kylfinganna eftir því. Sjaldan ef nokkru sinni hafa íslenskir kylfingar sýnt önnur eins tilþrif. MYNDATEXTI. Hallar þetta ekki örugglega eitthvað? Sigurpáll Geir Sveinsson úr Golfklúbbi Akureyrar skoðar púttlínu sína gaumgæfilega ásamt Ólafi G. Hilmarssyni, kylfusveini sínum. Áhorfendur fylgjast grannt með meistara sínum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar