Grindavík

Þorkell Þorkelsson

Grindavík

Kaupa Í körfu

UNGIR sem aldnir spreyta sig sumarlangt við veiðar. Veiðimenn dvelja margir hverjir í lengri tíma við ár og vötn þvers og kruss um landið og freista gæfunnar með stöng og jafnvel orma að vopni. Það þarf ekki að leita langt út fyrir höfuðborgarsvæðið til að finna ágætis veiðilendur. Ung stúlka, Ríkey Konráðsdóttir að nafni, stóð sallaróleg á steini við Seltjörn á Reykjanesi og renndi fyrir fiski er ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið um á dögunum. Engum sögum fer af veiðinni, en þó má vænta að einn silungur eða svo hafi í það minnsta nartað í beituna. ENGINN MYNDATEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar