Flamenco-dansarar

Jim Smart

Flamenco-dansarar

Kaupa Í körfu

Íslenskar blómarósir í hlutverki spænskra senjoríta. Steinunn Guðmundsdóttir og Ástrún Friðbjörnsdóttir hafa hér brugðið sér í flamenco-skóna og taka sporið. FLAMENCO-dansinn er upprunninn í Andalúsíu á Spáni og dansaður við tónlist þar sem skiptist á söngur, oft harmrænn, og hraðir kaflar leiknir á gítar. Flamenco er stolt Andalúsíu og því lá beinast við fyrir þær Steinunni Guðmundsdóttur og Ástrúnu Friðbjörnsdóttur, tvítugar reykvískar blómarósir, að fara til Granada til að læra listina. Reyndar var það ekki ætlunin að fara í dansnám þegar þær sigldu suður um höfin til Spánar í janúar á þessu ári. Þær ætluðu í spænskunám, sem þær og gerðu, og ekki sakaði að flamenco-dansinn fylgdi með í kaupunum. Þær stöllur luku stúdentsprófi frá Menntaskólanum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar