Hinrik Guðmundsson á Bóli geitabóndi

Morgunblaðið /Ragnar Axelsson

Hinrik Guðmundsson á Bóli geitabóndi

Kaupa Í körfu

enginn myndatexti GEITA-geit," kallar Hinrik Guðmundsson þar sem hann stikar yfir þúfur með brauð í lófa til fundar við geiturnar sínar. Síðskeggjaðar og sneplóttar safnast þær til hans í haganum og kiðlingarnir skokka með sitt mjóa jarm allt í kring. En hópurinn er var um sig og sumar huðnurnar snúa rassinum fyrirvaralaust í húsbónda sinn og láta sig hverfa. "Helvíti eru þær styggar núna, ætli það sé ekki von á rigningu, gæti best trúað því," segir Hinrik og vísar til þess hversu veðurglöggt geitfé er. "Þónokkru áður en úrkoma dembist yfir finna þær á sér hvers er að vænta og koma heim undir bæ og leita skjóls í útihúsum því þeim er mjög illa við vosbúð og þær forðast vatnsföll í lengstu lög. Sumir segja að geitur gangi af göflunum ef vatn kemst inn í eyrun á þeim."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar