Göngubrú yfir Hafnarfjarðarveg

Göngubrú yfir Hafnarfjarðarveg

Kaupa Í körfu

Göngubrú yfir Hafnarfjarðarveg á sinn stað HAFNARFJARÐARVEGI var lokað við Hraunsholtshæð frá kl. níu á föstudagskvöld til kl. 5 um nóttina á meðan lögð var göngubrú yfir veginn. 5 starfsmenn verktakans Eldafls í Njarðvík, ásamt kranamanni, komu brúnni á undirstöður þar sem hún var soðin saman í miðju og boltuð í endana. Að sögn Axels Péturssonar, framkvæmdastjóra Eldafls, gekk verkið vel. Brúin er smíðuð í Póllandi og vegur alls 37 tonn. Að sögn Axels er áætlaður heildarkostnaður við brúna um 60 milljónir króna. MYNDATEXTI. Starfsmenn Eldafls unnu á föstudagskvöld og fram eftir nóttu við að koma brúnni á undirstöður sínar. Þar var hún soðin föst í miðju og boltuð í endana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar