Malbikað á Reykjavíkurflugvelli

Brynjar Gauti

Malbikað á Reykjavíkurflugvelli

Kaupa Í körfu

MALBIKSFRAMKVÆMDIR standa nú yfir á akbrautarkafla við n/s flugbraut Reykjavíkurflugvallar og er verkið hluti af framkvæmdum við hliðarakbraut sem liggur meðfram brautinni enda á milli. Þegar myndin var tekin í gær var verið að vinna við malbikun á brautarmótum n/s-, v/a- og na/sv-flugbrautanna. Að sögn Heimis Más Péturssonar, upplýsingafulltrúa Flugmálastjórnar, er áætlað að framkvæmdum við endurgerð flugvallarins verði að fullu lokið fyrir 1. október nk. Vinna við gerð hliðarakbrautarinnar hófst í fyrra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar