Augnlækningar

Augnlækningar

Kaupa Í körfu

Aukið öryggi í leysiaugnlækningum Sjón er sögu ríkari MÓTTAKAN er skemmtilega stílhrein, björt og þægileg. Þaðan liggur gangur í hring, með vinnustofum til beggja handa. Húsnæðið er sérhannað með augnlækningar í huga, og blaðamaður og ljósmyndari eru einmitt komnir hingað í höfuðstöðvar Sjónlags hf. í Grafarvoginum til að fylgjast með sjónlagsaðgerð með nýjustu leysitækni. Dr. Jóhannes Kári Kristinsson, augnlæknir og sérfræðingur í hornhimnu- og leysi-augnlækningum, tekur á móti okkur, ásamt Maríu Aldísi Kristinsdóttur hjúkrunarfræðingi, en hún hefur sérhæft sig í hjúkrunarstörfum og aðstoð er lúta að augnlækningum, sérstaklega leysiaðgerðum. MYNDATEXTI.Eftirskoðun að lokinni aðgerð og meðferð hafin með bólgu- og sýklaeyðandi dropum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar