KR - ÍBV 1:1

Þorkell Þorkelsson

KR - ÍBV 1:1

Kaupa Í körfu

Eyjamenn mættu grimmir KR-ingum í Vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöldi og uppskáru þannig eitt stig í hörkuleik, sem helst verður minnst fyrir mörg glóru- og tilefnislaus brot svo spjöldin fóru átta sinnum á loft. Eyjamenn geta vel við 1:1 jafntefli og eitt stig unað en KR-ingar máttu varla við því, eru nú einu stigi á eftir efsta liðinu, Fylki, þegar tvær umferðir eru eftir. Myndatexti: Kjartan Antonsson stóð fyrir sínu í vörn ÍBV þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við KR í Vesturbænum í gær. Hér nær hann boltanum af Einari Þór Daníelssyni, sem átti á tíðum erfitt uppdráttar, og Hjalti Jóhannesson, félagi Kjartans, fylgist grannt með framvindu mála.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar