Landsliðið á æfingu Laugardalsvelli

Landsliðið á æfingu Laugardalsvelli

Kaupa Í körfu

Alvöru prófsteinn á liðið RÚNAR Kristinsson fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu leikur í dag sinn 95. landsleik þegar Íslendingar glíma við Ungverja klukkan 16 á Laugardalsvellinum. Rúnar segir að þó svo um vináttuleik sé að ræða sé hann mjög mikilvægur fyrir íslenska liðið fyrir átökin í undankeppni Evrópumótsins en Íslendingar mæta Skotum og Litháum á Laugardalsvellinum í næsta mánuði. MYNDATEXTI. Hermann Hreiðarsson og Marel Baldvinsson kljást um boltann á æfingu íslenska landsliðsins, Ríkharður Daðason fylgist með. Allir verða þeir í eldlínunni í dag þegar íslenska landsliðið mætir því ungverska.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar