Inga Rósa Þórðardóttir framkvæmdastjóri

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Inga Rósa Þórðardóttir framkvæmdastjóri

Kaupa Í körfu

Ingu Rósu Þórðardóttur finnst besti tíminn til að skipuleggja starfið vera á leiðinni í vinnuna. Í HUGANUM er Inga Rósa Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, oftast komin í vinnuna klukkan hálfníu þótt eiginlegur vinnudagur hefjist ekki fyrr en hálftíma síðar á skrifstofunni. Hún segir að besti tíminn til að skipuleggja starfið og láta hugann reika um alla heima og geima sé á leiðinni í vinnuna á tveimur jafnfljótum. Nánar tiltekið frá heimili hennar Kópavogsmegin í Fossvogsdal að Mörkinni 6. Þessa leið hefur hún farið fótgangandi um næstum fjögurra ára skeið og sömu leið til baka að kvöldi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar