Íslenska óperan opnar heimasíðu

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Íslenska óperan opnar heimasíðu

Kaupa Í körfu

Óperuvefurinn, samstarfsverkefni Origo og Íslensku óperunnar "Fyrirtæki eiga að skilja eitthvað eftir sig í menningunni" ÓPERUVEFURINN var opnaður í gær við athöfn í Íslensku óperunni. Óperan og Origo ehf., dótturfyrirtæki Tölvumynda hf., gerðu síðastliðinn vetur samstarfssamning um hönnun og smíði á Óperuvefnum. Vefstjóri er Margrét Sveinbjörnsdóttir, kynningarstjóri Íslensku óperunnar. Hún segir að fyrsta verkefnið hafi verið að setja sig í spor notandans og gera sér grein fyrir því hverjum vefurinn ætti að þjóna. Upplýsingunum á vefnum er skipt í sex efnisflokka. MYNDATEXTI: Ólafur Kjartan Sigurðarson söngvari opnar Óperuvefinn að vefstjóranum, Margréti Sveinbjörnsdóttur, viðstöddum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar