William T. Hogart aðstoðarforstjóri NOAA

William T. Hogart aðstoðarforstjóri NOAA

Kaupa Í körfu

William T. Hogart "ÉG tel íslenzka fiskveiðistjórnunarkerfið mjög gott og tel að slíkt kerfi myndi henta vel við fiskveiðistjórnun í Bandaríkjunum. Vandi okkar er umframveiðigeta fiskiskipaflotans og við þurfum að sníða veiðigetuna að veiðiþoli fiskistofnanna. Þegar of mörg skip eltast við of fáa fiska tapa allir á veiðunum, samkeppnin verður of mikil og hætta á því að verr verði farið með auðlindina en ella. Við verðum að draga úr veiðigetunni og til að geta það þurfum við kerfi eins og íslenzka kvótakerfið," segir William T. Hogarth, aðstoðarframkvæmdastjóri NOAA Fisheries í Bandaríkjunum, í samtali við Morgunblaðið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar