Umferðarslys, Hafnarfjarðarvegur

Júlíus Sigurjónsson, julius@mbl.is

Umferðarslys, Hafnarfjarðarvegur

Kaupa Í körfu

Þrír á slysadeild eftir kappakstur 17 ÁRA ökumaður sportbíls var lagður inn á gjörgæsludeild Landspítalans vegna meiðsla sem hann hlaut þegar hann missti stjórn á bílnum í kappakstri við tvo aðra bíla á Hafnarfjarðarveginum seint á föstudagskvöld. MYNDATEXTI: Sportbíllinn er gjörónýtur en hann fór í loftköstum yfir brekkubrúnina í fjarska og kyrrstæðu bílana áður en hann staðnæmdist. Umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi móts við Sunnuhlíð. Ökumaður BMW bíls missir stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að hann fer tæpa 50 metra í loftköstum. Bílinn flýgur yfir tvær bifreiðar, lendir á einni og kastast af henni yfir tvær til viðbótar áður en hann lendir á göngustíg.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar