Þróttur R. - Breiðablik 3:0

Jim Smart

Þróttur R. - Breiðablik 3:0

Kaupa Í körfu

Ásgeir Elíasson, þjálfarinn snjalli, hafði ástæðu til að brosa. Hann hefur enn á ný náð að byggja upp lið sem er til alls líklegt - Þróttur leikur í efstu deild að ári. TAUGAR Þróttara voru þandar til hins ítrasta í 80 mínútur þegar þeir fengu Breiðablik í heimsókn á laugardaginn. Þróttur þurfti sigur til að vera öruggur um fylgja Val í efstu deild að ári og þrátt fyrir að vera einu marki yfir vissu leikmenn að brugðið gæti til beggja vona - því með jafntefli sæti liðið eftir og Stjarnan tæki sætið eftirsótta. En á síðustu tíu mínútunum fengu Þróttarar tvö mörk og fögnuðu ærlega 3:0 sigri. Vonbrigin voru aftur á móti mikil hjá Stjörnumönnum, sem unnu stórsigur á Val, 5:1.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar