Deilur Þjóðleikhúss og Forum ehf.

Þorkell Þorkelsson

Deilur Þjóðleikhúss og Forum ehf.

Kaupa Í körfu

Tæplega 10 metra löngu barborði úr Þjóðleikhúskjallaranum, sem fjarlægt var úr húsnæðinu fyrr í þessum mánuði, var skilað á sinn stað í fyrradag í pörtum, ásamt píanói sem tekið var. Barinn var orðinn mjög fúinn vegna langvarandi raka svo stæka súrlykt lagði af honum, að sögn fyrrverandi rekstraraðila staðarins. Þjóðleikhússtjóri kærði brottflutning munanna til lögreglu og segist ekki búast við því að kæran verði dregin til baka þótt mununum hafi verið skilað. Myndatexti: Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri með hluta barsins sem kominn er aftur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar