Landkynningarspjöld f. Flugleiðavélar

Sverrir Vilhelmsson

Landkynningarspjöld f. Flugleiðavélar

Kaupa Í körfu

Flugleiðir og Iceland Naturally, sem er samræmt kynningarátak samgönguráðuneytisins og íslenskra fyrirtækja, hafa tekið upp samstarf um að sett verði myndskreytt landkynningarspjöld á þotur Flugleiða. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Flugleiða, verða kynningarspjöldin sett utan á allar vélar Flugleiða við farþegainngang vélanna. Á meðfylgjandi mynd má sjá Sigurð Helgason, forstjóra Flugleiða, og Sturlu Böðvarsson, samgönguráðherra, virða kynningarspjöldin fyrir sér þegar gengið var frá samkomulaginu í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar