Rigning í Reykjavík

Rax /Ragnar Axelsson

Rigning í Reykjavík

Kaupa Í körfu

Eftir langan skóladag getur biðin eftir strætó tekið á taugarnar. Fæstir kunna því vel að standa aðgerðarlausir innan um ókunnuga og yfirleitt eru samræður í biðskýlum fátíðar, nema á milli góðra vina. En þegar þögnin virðist þrúgandi og enginn er vinurinn til að ræða við í skýlinu er sennilega fátt eins upplífgandi og skemmtilegt símtal til að dreifa huganum. Að hlæja hressilega með vini eða ættingja, sem er á hinum enda línunnar, getur auðveldlega stytt biðina eftir strætó.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar