Íþróttir hús Keflavík

Jim Smart

Íþróttir hús Keflavík

Kaupa Í körfu

MIKIL bót varð á aðstöðu fimleikaiðkenda í Keflavík þegar fimleikagryfja var tekin í notkun í nýjum sal íþróttahússins við Sunnubraut á dögunum. Að sögn Sigurbjargar Guðmundsdóttur, formanns fimleikadeildar Keflavíkur breytir gryfjan miklu fyrir fimleikaiðkendur því ekki þurfi lengur að senda þá til Reykjavíkur einu sinni í viku til æfinga. Myndatexti: Inga Lóa Guðmundsdóttir og Ólöf Sigurðardóttir, fyrrverandi formenn Fimleikadeildar Keflavíkur, voru ánægðar með fimleikasalinn þegar þær klipptu á borða til staðfestingar á því að hann væri formlega tekinn í notkun. Báðar hafa lengi barist fyrir betri aðstöðu fimleikafólks.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar