MR busavígsla tolleringar

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

MR busavígsla tolleringar

Kaupa Í körfu

BUSAVÍGSLA fór fram í Menntaskólanum í Reykjavík í gær þar sem nýnemar voru tolleraðir samkvæmt gamalli hefð í skólanum. Í MR er dagurinn jafnan nefndur "tolleringadagur" þegar 6. bekkingar ganga niður Bókhlöðustíg, eftir Lækjargötu og að gömlu skólabyggingunni, íklæddir toga-kuflum við undirspil úr Carmina Burana. Að sögn Sigurðar Arnar Hilmarssonar, inspector scholae, tókst dagurinn með ágætum og nýnemar og þeir sem eldri eru skemmtu sér konunglega. Að lokinni tolleringu fengu nýnemar barmmerki og boðið var upp á súkkulaðiköku og mjólk í félagsaðstöðu nemenda. Reminantar, 4. og 5. bekkingar, voru svartklæddir í tilefni dagsins og aðstoðuðu við busavígsluna. Nýnemum var hins vegar skylt að mæta í gallabuxum og hvítum bol. Um kvöldið var haldinn dansleikur á Kaffi Reykjavík þar sem yngri og eldri nemendur skemmtu sér saman.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar