Barnaspítalinn

Sverrir Vilhelmsson

Barnaspítalinn

Kaupa Í körfu

Þríburarnir Guðjón, Sara og Sif Ólafsbörn afhentu Ásgeiri Haraldssyni, prófessor og yfirlækni barnasviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss, 150 milljóna króna gjafabréf Barnaspítalasjóðs Hringsins til byggingar barnaspítala. Yfirskrift bréfsins er "Til barna á Íslandi". Elísabet Hermannsdóttir, fyrrv. formaður kvenfélagsins Hringsins, fylgist með. TÍMAMÓT urðu í sögu kvenfélagsins Hringsins í gær þegar Barnaspítalasjóður Hringsins gaf 150 milljónir króna til byggingar barnaspítala við Hringbraut. Barnaspítalasjóðurinn var stofnaður 14. júní árið 1942 og hefur aðalhugsjónamál kvenfélagsins síðan verið að byggður yrði og rekinn sérhannaður spítali fyrir börn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar