Líkamsárás í húsi við Klapparstíg

Júlíus Sigurjónsson, julius@mbl

Líkamsárás í húsi við Klapparstíg

Kaupa Í körfu

Lögreglan var með mikinn viðbúnað á Klapparstíg og í nágrenni vegna morðsins og víðtæk leit að meintum árásarmanni bar árangur. frétt: MAÐUR var myrtur í húsi við Klapparstíg í Reykjavík í gærkvöldi og er maður í haldi lögreglunnar, grunaður um verknaðinn. Klukkan 21.35 í gærkvöldi fékk lögreglan tilkynningu um líkamsárás í húsi við Klapparstíg og hafði maður verið stunginn, en árásarmaður var á bak og burt þegar lögregla og sjúkralið komu á staðinn. Að sögn lögreglu var sá sem fyrir árásinni varð með lífsmarki þegar að var komið en hann lést af sárum sínum skömmu síðar. Svæðið í grennd við húsið, þar sem morðið var framið, var strax girt af og fór þegar fram víðtæk leit að hugsanlegu árásarvopni og meintum árásarmanni. Skömmu síðar fengust þær upplýsingar hjá lögreglunni að maður væri í haldi vegna málsins, en að öðru leyti varðist lögreglan allra frétta af málinu enda rannsóknin á frumstigi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar