Leður og gallaefni

Leður og gallaefni

Kaupa Í körfu

Gamlar gallaflíkur umbreytast ÞÓTT sniðið breytist reglulega samkvæmt lögmálinu um síbreytileika tískunnar, virðast gallabuxur og gallafatnaður ýmiss konar alltaf vera í tísku. Efalítið eru fáir sem ekki eiga eina eða fleiri gamlar flíkur af þessu tagi í fórum sínum. Kannski í þeirri von að lögmálið um að tískan fari í hringi sanni sig og sá dagur renni upp að þeir geti dustað rykið af þeim þannig að þær verði fullgilt tískuskrúð. Ingibjörg Ólafsdóttir, fatahönnuður og kjólameistari, tók af skarið fyrir tíu nemendur sína á þriðju önn í fata- og textílhönnun í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ þegar hún fól þeim verkefnið, Endursköpun og breytt notagildi, með gömlu gallaflíkunum þeirra í aðalhlutverki í bland við leður og þriðja efnið ef þeir vildu. MYNDATEXTI. Eigin hönnun - Fimm af tíu nemendum á fata- og textílsviði skrýðast eigin hönnun. Fremst t.v. er Svava Halldórsdóttir, þá Auður Bjarnadóttir og Karla Hreiðarsdóttir. Fyrir aftan standa Salvör Kristjánsdóttir (með húfu) og Tinna Hallbergsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar