Sveitarfélög

Kristján Kristjánsson

Sveitarfélög

Kaupa Í körfu

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var kjörinn formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga á 17. landsþingi sambandsins sem lauk á Akureyri á föstudag. Smári Geirsson formaður kjörnefndar gerði á fundinum grein fyrir tillögu nefndarinnar varðandi kjör stjórnar, fulltrúaráðs, launanefndar sveitarfélaga og skoðunarmanna og gat þess að annar háttur hefði verið hafður á miðað við fyrri kjör. Undirbúningur hefði verið vandaður og tillit tekið til fjölmarga þátt, s.s. úrslita sveitarstjórnakosninga, kyns og svæða innan kjördæma svo dæmi séu tekin. Myndatexti: Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði t.h. ræðir við tvo sveitunga sína sem báðir starfa að sveitarstjórnarmálum annars staðar á landinu, Sveinbjörn Eyjólfsson oddvita í Borgarfjarðarsveit og aðstoðarmann landbúnaðarráðherra t.v.og Tryggva Harðarson bæjarstjóra á Seyðisfirði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar